Að lesa og skrifa á íslensku
Að lesa og skrifa á íslensku er námsleið fyrir fullorðna einstaklinga af erlendum uppruna.
Áhersla er á grunnfærni í íslensku og að auka hæfni námsmanna til að lesa og skrifa á íslensku og öðlast öryggi í framburði íslenskra hljóða og orða. Nemendur læra einfaldan grunnorðaforða sem nýtist í daglegu lífi og þjálfa sig í einfaldri setningagerð. Æft er talað mál, skilning, lestur og ritun einfaldra texta og setninga. Tölur, tákn og greinamerki eru einnig þjálfuð í náminu í samblandi við hljóð- og stafa innlögn.
Fjölbreyttar kennsluaðferðir eru nýttar í náminu og mikil áhersla er á að nýta tölvur, snjalltæki og námsforrit í náminu.
Námsmat
Einhver heimavinna fylgir náminu, breytileg eftir námsþáttum og einstaklingum. Í lokin er staða nemenda metin.
Leiðbeinandi er Jóhanna Lilja Eiríksdóttir
Verð: 31000 kr
Staðsetning: Viska – Ægisgötu 2, önnur hæð.
Nánari upplýsingar veitir : johanna.lilja1@gmail.com og í síma 867-1160