Ertu kona á aldrinum 40-65 ára?
Þá ertu stödd “einhversstaðar” á breytingaskeiðinu og hormónar eru undir breytingum.
Þú ert kannski að stimpla þig inn í breytingaskeiðið eða hefur verið þar nokkur ár og finnur fyrir “alls konar”:
Þú ert of heit, sefur illa, ert þreytt, orkulítil, viðkvæm og sveiflukennd, þú hefur kannski fitnað um óæskileg kíló á magan og þau virðast bara hafa komið af sjálfu sér og fitubrennslan hefur einhvernveginn bara stoppað!
Eða þú er komin yfir hinum megin við bakkan, hætt á blæðingum en það er ýmislegt sem ekki hefur lagast.
Þú ert með verki og bólgur í liðum og vöðvum, þú ert ennþá þreytt og auka kílóin eru enn þrjósk.
Bólgur flækjast inn í alla starfsemi líkamans, hvort sem það eru hormónakerfið, meltingin eða fitubrennsla. Það hindrar þig í að vera þú og sú sem þú vilt vera, gera og framkvæma.
Ekki örvænta! Hjálpin er á leiðinni.Það er hægt að gera fullt og losa um gamlar bólgur og örva fitubrennsluna!
Þetta er ekki flókið! Það þarf að breyta, bæta og kæta!
Ef þig vantar estrogen uppbót þá endilega pantaðu tíma hjá kvennsjúkdómalækni.
Hormóna uppbót eða ekki. Þú getur gert heilmikið sem gerir þig orkuríka, einbeitta í líkamlegu og andlegu jafnvægi.
Á þessu námskeiði lærir á samspilið á milli hormóna og færð stjórn á streituhormóni og insúlíni, en það er aðal lykillinn að góðri fitubrennslu.
Þú lærir líka afhverju það næstum því er ómögulegt að léttast um gram, ef frumurnar eru með skert insulinnæmi. Ég kenni þér hvað þú átt að gera, til að laga það.
Þú ert aðal leiðbeinandinn fyrir þinn eigin líkama! Ef hann fær réttu skilaboðin, þá gerir hann hann það sem þú vilt! Ég kenni þér hvað þú átt að segja honum!
Skilaboðin til líkamans
-Það sem þú borðar, og ekki borðar! Á hvaða tíma dags þú borðar hvað. Gerð, hráefni og magn!
-Hreyfing og líkamsrækt.
-Markviss bætiefni
– Bio hacks sem virka á fitubrennslu, orku, streitu, jafnvægi og vellíðan.
Tiltölulega fáar breytingar, tikka í svo ótal mörg jákvæð box, á svo mörgum sviðum! Allt lagast og verður betra!
- Aukin fitubrennsla.
- Bólgur og verkir verða minni.
- Orka og gleði. Meira af þessu!
- Svefninn betri og rólegri.
- Hitakóf minna eða hverfur alveg!
- Andlegur styrkur, einbeiting og minni: mun betra!
- Slímhúð og þurrkur lagast og þú færð rakan tilbaka.
- Drive og power!
Þetta verður farið í á námskeiðinu:
- Jafnvægi á hormónum.
- Fitubrennsla og þyngdartab!
- Blóðsykur, bólga, insúlínnæmi og fitubrennsla.
- Breytingaskeiðið.
- Hacks fyrir hormóna og gen sem yngir þig upp!
- Það sem þú átt að borða, hvenær og hvað mikið.
- Matur sem stillir hormónabúskapinn og eykur fitubrennslu!
- Markviss bætiefni fyrir hormóna jafnvægi, bólgur, orku og fitubrennslu.
- Spurningar og svör
Innifalið í námskeiðinu:
- Fræðsla og kennsla á life námskeiði
- Stuðningur og svör við spurningum í tvær vikur í lokuðum hóp á fb
- Kennslugögn
- Hráefnislisti með bólgustemmandi og hormónavænum mat.
- Viku matarplan á lágkolvetna, bólgustemmandi fæði.
- Bætiefnalisti: breytingaskeið og hormónar, orka, bólgur.
- Fleira
Stuðningur og svör við spurningum í lokuðum hóp á FB í tvær vikur!
Ég mæli eindregið með, að þú eigir Ketóflex bókina og takir hana með þér á fundinn. Þar eru svo margar gagnlegar og hagnýtar upplýsingar og frábærar og einfaldar uppskriftir fyrir hormónana og brennsluna. Þú getur pantað hana HÉR
Þú færð póst með nánari upplýsingum og aðgang í fb hópinn nokkrum dögum fyrir byrjun námskeiðs.