Þjónusta

Markviss ráðgjöf fyrir fyrirtæki og stofnanir

Markviss


Markviss er aðferð til að vinna kerfisbundið að starfsmannaþróun í fyrirtækjum og stofnunum. Með Markviss er tekist á við þau verkefni fyrirtækja sem fela í sér skipulagningu menntunar, þjálfunar og annað sem tengist uppbyggingu starfsmanna.

Starfsmannaþróun er eitt mikilvægasta verkfærið til að þróa og bæta fyrirtæki. Til að mögulegt sé að mæta þörfum starfsmanna er nauðsynlegt að vinna góða þarfagreiningu.

Markviss er aðferðafræði þar sem megin áhersla er lögð á að stjórnendur og aðrir starfsmenn vinni saman að þeirri uppbyggingu sem þörf er á. Markviss býður upp á einföld tæki sem fyrirtækin geta notað og sniðið að eigin þörfum. Með aðferðafræði Markviss er gengið úr skugga um að starfsmannastefna fyrirtækisins sé í takt við aðra þróun í fyrirtækinu.

Með notkun á Markviss fæst yfirlit yfir mannauð fyrirtækisins og hvernig hægt er að þróa hann áfram. Fyrirtækið þarf ekki að eyða tíma í að þróa sitt eigið kerfi heldur getur notað krafta sína í önnur verkefni.

Fyrirtækin geta hvort heldur sem er notað aðferðafræði Markviss á eigin spýtur eða fengið ráðgjafa sér til aðstoðar.

Ægisgata 2 | 900 Vestmannaeyjar

Vantar þig upplýsingar eða aðstoð?

Hafðu samband viska@viskave.is

S: 488 0115 & 488 0116