Raunfærnimat í skipstjórn

Raunfærnimat er leið til að meta þá færni og þekkingu sem öðlast má á vinnumarkaði. Matið getur mögulega stytt nám og verið hvatning til að ljúka því. 

Viska býður upp á raunfærnimat í skipstjórn á landsvísu í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Skipstjórnarskóla Tækniskólans.

Skilyrði fyrir þátttöku í raunfærnimati í skipstjórn eru 23 ára aldur, og að lágmarki, þriggja ára staðfest starfsreynsla á sjó.

Raunfærnimatsferlið:

  • Þú sækir um og skilar inn gögnum
  • Verkefnastjóri/Náms- og starfsráðgjafi hefur samband við þig
  • Þú metur þekkingu þína með því að svara sjálfsmatslistum
  • Þú ferð í matssamtal hjá fagaðila og niðurstöður eru skráðar
  • Þú færð ráðgjöf varðandi næstu skref