Áhugasviðsgreining

Vissir þú að Viska býður upp á áhugasviðspróf.

Áhugasviðskönnun segir til um hvar áhugasvið fólks liggja og geta gefið vísbendingar um hvaða starfssvið myndi henta. Slík könnun getur því auðveldað þér við val á námi og starfi. Hafa ber í huga að þegar niðurstöðurnar koma tekur við nokkur vinna við að kanna nám og störf sem koma til greina fyrir þig. Í þessari vinnu þarf að fara í ákveðna sjálfskönnun þar sem þú skoðar m.a. styrkleika þína, reynslu og gildismat.

Áhugasviðsgreining hjá Visku er á kostnaðarverði og kostar 3700 krónur

Bendill II

Könnunin er rafræn og tekur um 35 – 45 mínútur að svara henni. Unnið er síðan úr henni hjá náms- og starfsráðgjafa.

Erlend áhugasviðskönnun

Í leit að starfi

Könnunin hefur verið þýdd og staðfærð á íslensku.
Hún er á pappírsformi og tekur um 30-40 mínútur að svara henni.
Unnið er síðan úr henni hjá náms- og starfsráðgjafa.

Prófið er ókeypis.

Bendill III

Tekur mið á þeim sem að eru að skoða háskólanám.

Frábær síða fyrir þá sem að eru að huga að næstu skrefum