Í lífi og starfi er mikilvægt að kunna að setja mörk af ábyrgð, vinsemd og festu. Við gegnum mörgum hlutverkum og þess vegna er gott að skilja á milli, til dæmis sem starfsmenn, vinnufélagar, stjórnendur, eigendur, kunningjar, ættingjar, vinir, foreldrar, makar, aðstandendur og einstaklingar með fjölskyldu og frítíma, en ekki síst sem mannlegar verur sem þurfa að hlúa að sjálfum sér.
Farið er í mikilvægi þess að þekkja sínar eigin tilhneigingar og vita hvaða mörk þarf helst að styrkja, til að geta byrjað að æfa sig í að setja skýr og mannleg mörk. Hvenær er líklegast að það reyni á mörkin? Er það í ákveðnum aðstæðum? Eru ákveðnir einstaklingar sem taka af okkur stjórnina, orðið eða skipulagið?
Gefin eru ráð í samskiptum, til dæmis varðandi það að hafa áhrif á tímasetningar, stað og stund, aðstöðu og andrými til að sinna erindum og tækifæri til persónulegrar hvíldar. Lögð er áhersla á að láta ekki stýrast af óskipulagi annarra og mikilvægi þess að geta sagt “nei” á skýran og vinsamlegan hátt.
Fræðsla, umræður, sjálfsskoðun og persónuleg markmið sem unnið er með milli vinnustofa/námskeiðshluta. Reglulegar pásur, öndunaræfingar og léttar hugleiðslur til að fríska upp á orku og athygli.
Leiðbeinandi er Steinunn Inga Stefánsdóttir MSc streitufræði, MSc viðskiptasálfræði, BA sálfræði og fer kennsla fram í Visku – Ægisgötu 2.
Fimmtudaginn 7. sept kl 13-16 í Visku – staðkennsla
Fimmtudaginn 14. sept kl 13-16 í Visku – fjarkennsla
Fimmtudaginn 21. sept kl 13-16 í Visku – fjarkennsla
Fimmtudaginn 28. sept kl 13-16 í Visku – staðkennsla
Nánari upplýsingar veitir Minna í síma 847-6690
Smelltu hér til að skrá þig