AI masterclass: Meta auglýsingar

64.900 kr.

 

 

 

Category:
Description

Á þessu fjögurra klukkustunda verklega námskeiði lærir þú að nota gervigreindartólið Claude til að skipuleggja herferð, skrifa auglýsingatexta og lesa úr niðurstöðunum.

Þú vinnur í þínum eigin Meta-auglýsingareikningi og byggir upp herferð út frá þínu fyrirtæki, markhópi og markmiðum. Markmiðið er að þú farir heim með herferð sem er tilbúin til birtingar þegar þér hentar og safn af tilbúnum beiðnum sem þú getur notað aftur í Claude.

Á námskeiðinu lærir þú að
– Tengja Claude við Meta-auglýsingareikninginn þinn.
– Gefa Claude skýrar upplýsingar um vörumerkið, markhópinn og tilboðið svo tillögurnar passi við það sem þú vilt auglýsa.
– Byggja upp herferð, skrifa auglýsingatexta og fá hugmyndir að myndefni.
– Lesa úr niðurstöðum og meta hvaða auglýsingar eigi að halda áfram með, hvar sé ástæða til að auka fjárveitingu og hvenær sé best að stöðva auglýsingu.
– Setja upp sjálfvirka morgunskýrslu sem sýnir hvernig auglýsingarnar ganga og hvað er helst vert að skoða þann daginn.
Fyrir námskeiðið

Engin fyrri reynsla af Claude er nauðsynleg. Taktu með fartölvu og gakktu úr skugga um að þú komist inn á Meta-auglýsingareikninginn þinn áður en námskeiðið hefst.

Dagsetning: 3. og 4. apríl 2027
Tími: Kl. 15:00–17:00 báða daga
Leiðbeinandi: Tanja Ýr Ástþórsdóttir
Verð: 64.900 kr.
Staðsetning: Viska, Ægisgötu 2, 2. hæð

Smelltu hér til að skrá þig