Skref fyrir skref

49.900 kr.

 

 

 

Description

SKREF FYRIR SKREF –  FRÁ HEIMAEY YFIR FIMMVÖRÐUHÁLS!

Langar þig í útivistar ævintýri árið 2027?

Í janúar hefst sex mánaða göngu- og útivistarnámskeið í Vestmannaeyjum.  Við göngum saman, byggjum upp þol og sjálfstraust og stefnum að sameiginlegu lokamarkmiði sem er að ganga yfir Fimmvörðuháls í júní!

Þetta námskeið er fyrir þau sem vilja hreyfa sig og njóta náttúrunnar, kynnast fólki og verða öruggari í útivist. Námskeiðið er bæði fyrir byrjendur og þá sem eru vanir, en markmiðið er ekki vegalengdin eða hraðin, heldur að gera útiveru og hreyfingu að hluta af daglegu lífi og byggja upp gönguþol til að takast á við stærri ævintýri þegar líður á vorið.

Það verður gengið á fjöll, í fjörum og á láglendi. En lagt verður upp með að ganga sem minnst á malbiki.

Við vinnum markvisst að því að vera tilbúin fyrir Fimmvörðuháls í júní 2027, með aukinni áherslu á þol, búnað og öryggi eftir því sem líður á námskeiðið.

 

Hvað er innifalið?

Sameiginlegar göngur
Um þrjár göngur í mánuði í fjölbreyttu landslagi Vestmannaeyja, með stigvaxandi vegalengdum og áskorunum.

Göngur verða að jafnaði á miðvikudögum (kl. 17.00) og laugardögum (kl. 9.30) og fræðsla á mánudögum eða miðvikudögum (kl. 20.00). Göngurnar á virkum dögum eru 1-1,5 klst en á laugardögum er gert ráð fyrir 2-3 klst.

Samtals 10 styttri göngur, 6 lengri göngur og 6 fræðslukvöld.

Lokaður facebook hópur þar sem dagskrá og allskyns fróðleikur er settur inn. Einnig munum við nýtast við Strava til að halda okkur við efnið.

 

Dagskrá (birt með fyrirvara um breytingar)

Janúar:

  1. 13. janúar – styttri ganga
  2. 18. janúar – fræðsla
  3. 23. janúar – lengri ganga
  4. 27. janúar – styttri ganga

Febrúar:

  1. 3. febrúar – styttri ganga
  2. 6. febrúar – lengri ganga
  3. 17. febrúar – fræðsla
  4. 24. febrúar – styttri ganga

Mars:

  1. 3. mars – styttri ganga
  2. 13. mars – lengri ganga
  3. 15. mars – fræðsla
  4. 24. mars – styttri ganga

Apríl:

  1. 7. apríl – styttri ganga
  2. 17. apríl – lengri ganga
  3. 19. apríl – fræðsla
  4. 28. apríl – styttri ganga

Maí:

  1. 3. maí – fræðsla
  2. 15. maí – lengri ganga
  3. 19. maí – styttri ganga

Júní:

  1. 5. júní – lengri ganga
  2. 9. júní – styttri ganga
  3. 21. júní – undirbúningsfundur

Göngur uppi á landi
Stefnt er að ná 1–2 göngum á laugardögum uppi á landi (Samgöngur ekki innifaldar í verði).

Fimmvörðuháls:

  1. 26. júní – gengið yfir Fimmvörðuháls
    1. 27. Júní til vara

Gangan yfir Fimmvörðuháls er um 25 km löng leið með um 1300 metra samanlagðri hækkun þar sem gengið er frá Skógafossi yfir í Bása í Þórsmörk. Gert er ráð fyrir að gangan taki um 9-11 klst.

ATH! kostnaður við gönguna yfir Fimmvörðuháls er ekki innifalin í verði.

 

Fræðsla einu sinni í mánuði

  1. Að lesa veðurspár og meta aðstæður.
  2. Kortalestur, GPS og Wikiloc.
  3. Göngubúnaður, fatnaður og öryggi.
  4. Næring, vökvi og undirbúningur fyrir lengri göngur.
  5. Skipulag og undirbúningur fyrir Fimmvörðuháls.

 

Verð: 49.900 kr (hægt að dreifa greiðslum)

  1. Ath að ferðakostnaður og annar aukakostnaður varðandi gönguna yfir Fimmvörðuháls er ekki innifalinn.

 

Eyrún Haraldsdóttir hefur umsjón með námskeiðinu.

Hún hefur verið starfandi í björgunarsveit frá árinu 2018, verið þátttakandi í gönguhópum á höfuðborgarsvæðinu ásamt því að hafa gengið mikið um fjöll og firnindi Íslands síðustu 15 ár

 

Takmarkaður fjöldi þátttakenda til að tryggja góða upplifun og persónulega nálgun.

Smelltu hér til að skrá þig