Á þessu tveggja daga námskeiði fer Tanja Ýr Ástþórsdóttir yfir grunninn í efnisgerð fyrir Instagram, Facebook og TikTok. Námskeiðið hentar fyrirtækjaeigendum og þeim sem sjá um samfélagsmiðla fyrir fyrirtæki og vilja læra að skipuleggja og búa til efni frá grunni.
Fyrri daginn skoðum við hvernig miðlarnir virka, hvernig best er að setja þá upp og hvers konar efni hentar á hverjum miðli. Við förum líka yfir hvernig þú getur nýtt vinsæla strauma og lesið úr tölfræðinni til að sjá hvaða efni vekur áhuga. tanjayr.is
Seinni daginn er komið að verklegri vinnu. Þú klippir þitt eigið myndband í CapCut, prófar að bæta við texta, hljóði og tónlist og skipuleggur næstu birtingar með efnisdagatali. Þú þarft enga fyrri reynslu af myndbandsklippingu. tanjayr.is
Dagsetning: 3. og 4. apríl 2027
Tími: Kl. 10:00–14:30 báða daga
Leiðbeinandi: Tanja Ýr Ástþórsdóttir
Verð: 60.900 kr.
Staðsetning: Viska, Ægisgötu 2, 2. hæð
