Smáréttir og sælkerastund

19.900 kr.

Description

Smáréttir og sælkerastund: smáréttir á veisluborðið

Langar þig að læra að útbúa girnilega smárétti fyrir næstu veislu eða matarboð?

Á þessu skemmtilega og hagnýta matreiðslunámskeiði læra þátttakendur að útbúa fjölbreytta smárétti undir leiðsögn Einars Björns Árnasonar. Farið verður yfir undirbúning hráefna, handbrögð við matreiðsluna og hvernig má bera réttina fallega fram á veisluborði.

Námskeiðinu lýkur með sameiginlegum kvöldverði þar sem þátttakendur njóta réttanna sem þeir hafa útbúið saman.

Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja fá nýjar hugmyndir fyrir veisluborðið og eiga notalega kvöldstund í góðum félagsskap.

Dagsetning: 4. febrúar 2027
Tími: Kl. 17:00–20:00
Leiðbeinandi: Einar Björn Árnason
Verð: 19.900 kr.
Staðsetning: Einsi kaldi

Smelltu hér til að skrá þig