Námskeið í kolateikningu

29.900 kr.

Description

Námskeið í kolateikningu

Á þessu tveggja daga verklega námskeiði kynnir Karl Jóhann Jónsson málari aðferðir sem hann hefur þróað við eigin myndgerð, einkum í portrettum. Þú velur þér viðfangsefni og vinnur mynd út frá því með leiðsögn Karls. Viðfangsefnið getur til dæmis verið portrett, dýr, nærmynd eða uppstilling.

Við skoðum hvaða pappír hentar og prófum að leggja grunninn með viðarkolum sem auðvelt er að lýsa og dekkja. Síðan notum við steypt kol til að dýpka skuggana og hvítt pastel eða hvítan gvass til að draga fram björtustu fleti myndarinnar. Markmiðið er að komast sem næst því að ljúka einni mynd yfir helgina.

Fyrirmyndir

Gott er að taka með einfalda fyrirmynd til upphitunar, til dæmis mynd af ávexti, og aðra sem þú vilt vinna betur með. Veldu skýra svarthvíta ljósmynd með góðum blæbrigðum frá ljósu yfir í dökkt og viðfangsefni sem þú treystir þér til að vinna á einni helgi. Það getur líka verið gagnlegt að hafa með ljósrit af sömu mynd til að teikna hjálparlínur á eða geyma myndina í spjaldtölvu til að prófa mismunandi útfærslur.

Áhaldalisti
– A3-pappír, gjarnan nokkrar tegundir, til dæmis milligrófur vatnslitapappír, grátónaður pappír, svartur pappír eða pastelpappír.
– Viðarkol í mismunandi breiddum, steypt kol og kolablýantur.
– Hvítt pastel, helst bæði í blýantsformi fyrir smáatriði og sem krít fyrir stærri fleti.
– Hvítur gvass í túpu og grannur vatnslitapensill.
– Strokleður, hnoðstrokleður og teikniblýantar af mismunandi mýkt.
– Eldhúspappír eða annar mjúkur pappír og eyrnapinnar.
– Festisprey fyrir kolateikningar (fixative).
– Dúkahnífur og sandpappír til að móta odda á kola- og pastelblýöntum.
– Hart, slétt spjald, aðeins stærra en A3, og málaralímband eða litlar klemmur til að festa blaðið.
Mjúkur, breiður pensill og einnota hanskar geta líka komið sér vel.

Dagsetning: 3. og 4. apríl 2027
Tími: Kl. 10:00–15:00 báða daga
Leiðbeinandi: Karl Jóhann Jónsson
Verð: 29.900 kr.
Staðsetning: Hvíta húsið

Smelltu hér til að skrá þig