Hönnun á eigin súkkulaðimóti
Leiðbeinandi: Frosti Gíslason
Í samstarfi við Fab Lab Vestmannaeyjar
Dagsetningar: 10. og 12. nóvember 2026
Tími: 17:00–19:00
Staðsetning: Fab Lab, Ægisgötu 2, 3. hæð
Verð: 25.000 kr.
Langar þig að læra að hanna og útbúa þitt eigið súkkulaðimót?
Á námskeiðinu fá þátttakendur kynningu á þrívíddarhönnun, þrívíddarprentun og mótagerð. Þátttakendur hanna eigið form í einföldu þrívíddarforriti og undirbúa hönnunina fyrir þrívíddarprentun. Hönnunin er síðan prentuð út sem frumgerð sem notuð er til að útbúa súkkulaðimót í formmótunarvél.
Hægt er að útfæra mótið með eigin stöfum, merki, mynstri, tákni eða annarri hönnun. Þátttakendur fá þannig að kynnast mismunandi aðferðum stafrænnar framleiðslu og hvernig hægt er að nýta þær við gerð sérhannaðra móta.
Námskeiðið hentar byrjendum og öllum sem hafa áhuga á hönnun, handverki og stafrænni framleiðslu. Engin fyrri reynsla af þrívíddarhönnun eða þrívíddarprentun er nauðsynleg.
Smelltu hér til að skrá þig
