Hönnun og smíði LED-lampa

25.000 kr.

Description

Hönnun og smíði LED-lampa

Leiðbeinandi: Frosti Gíslason
Í samstarfi við Fab Lab Vestmannaeyjar
Dagsetningar: 20. og 22. október 2026
Tími: 17:00–19:00
Staðsetning: Fab Lab, Ægisgötu 2, 3. hæð
Verð: 25.000 kr.

Langar þig að læra að hanna og smíða þinn eigin LED-lampa og stýra lýsingunni með farsíma?

Á námskeiðinu fá þátttakendur kynningu á stafrænni hönnun og framleiðslu, rafeindatækni og einfaldri forritun. Þátttakendur hanna útlit eigin lampa, undirbúa hönnunina fyrir framleiðslu og nýta tæki og búnað Fab Lab við smíðina.

Farið verður yfir laserskurð og 3D-prentun ásamt samsetningu og tengingu helstu íhluta lampans. Að lokum verður ljósastýringin forrituð þannig að hægt sé að stjórna lýsingunni með takka og snjalltæki.

Námskeiðið hentar byrjendum og öllum sem hafa áhuga á hönnun, tækni, handverki og stafrænni framleiðslu. Engin fyrri reynsla af Fab Lab, hönnunarforritum, rafeindatækni eða forritun er nauðsynleg.

Smelltu hér til að skrá þig