Ævintýraeyjan

10.000 kr.

Description

Ævintýraeyjan

Leiðbeinandi: Eyrún Haraldsdóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur

Dagsetningar: 9 september, 23 september, 7 október og 14 október

Tími: 16:30–17:30
Verð: 10.000 kr.

Ævintýraeyjan er útivistar- og ævintýranámskeið fyrir börn á aldrinum 3–9 ára í fylgd með fullorðnum.

Námskeiðið fer fram á miðvikudögum þar sem heimsóttur verður nýr staður og tekið fyrir nýtt viðfangsefni í hvert sinn. Ferðirnar eru farnar á forsendum barnanna og sniðnar að þörfum þeirra með áherslu á leik, könnun og upplifun.

Markmið námskeiðsins er að hvetja börn og fullorðna til útiveru, samveru og ævintýra í einstakri náttúru Vestmannaeyja. Með sameiginlegri upplifun skapast tækifæri til að efla tengsl, kynnast umhverfinu og njóta þess að vera saman úti í náttúrunni.

Ævintýraeyjan hentar öllum fjölskyldum sem vilja skapa skemmtilegar minningar og upplifa náttúruna með augum barnanna.

 

Smelltu hér til að skrá þig

 

Product Enquiry

Product Enquiry