Description
Ítalskt kvöld með Sigga Gísla
Leiðbeinandi: Siggi Gísla
Dagsetning: 22. október 2026
Tími: 17:00–20:30
Staðsetning: Gott
Verð: 19.900 kr.
Vegna mikilla vinsælda snýr Ítalskt kvöld með Sigga Gísla aftur – nú með nýju sniði og nýjum réttum.
Á þessu skemmtilega og bragðgóða námskeiði fá þátttakendur innsýn í ítalska matargerð undir leiðsögn Sigga Gísla. Farið verður yfir valin hráefni, aðferðir og uppskriftir sem einkenna ítalska matarmenningu og þátttakendur taka virkan þátt í matargerðinni.
Kvöldinu lýkur svo með sameiginlegri máltíð þar sem hópurinn nýtur afrakstursins saman í notalegu umhverfi.
Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á matargerð, vilja læra nýjar aðferðir og njóta góðs félagsskapar og ítalskra bragðtegunda.
Smelltu hér til að skrá þig
Product Enquiry
