Karlaráðstefnan Skjöldur – Vestmannaeyjar 17. október
Herraþingið Skjöldur verður haldið í þriðja sinn í Vestmannaeyjum laugardaginn 17. október. Skjöldur hefur fengið frábærar viðtökur og nú bjóðum við enn á ný upp á einstakan viðburð fyrir karlmenn á öllum aldri.
Deginum verður varið í áhugaverð erindi, góðan félagsskap og fjölbreytta dagskrá sem nærir bæði líkama og sál. Skjöldur er tilvalinn fyrir vinnustaði, vini, feðga, bræður, frændur eða hvern þann karlmann sem vill gera sér glaðan dag í Eyjum.
📍 Sagnheimar, kl. 14:00–17:30
Á ráðstefnunni verður boðið upp á áhugaverð erindi og léttar veitingar í mat og drykk.
- Bergur Ebbi
- Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi)
- Jónas Sigurðsson
🍺 Hamingjustund og smakkupplifun á Brothers Brewery, kl. 17:30–19:00
Eftir ráðstefnuna heldur dagskráin áfram á Brothers Brewery með hamingjustund og skemmtilegri smakkupplifun.
🍽️ Kvöldverður á Einsi Kaldi, kl. 19:00
Deginum lýkur með glæsilegum kvöldverði á Einsa Kalda þar sem Einar Björn Árnason kokkur reiðir fram ljúffengar veitingar.
Allir þátttakendur fá einnig fallega gjöf.
💰 Verð: 28.900 kr.
Skoðaðu bæklinginn : HÉR
Við hlökkum til að fagna með ykkur í Vestmannaeyjum!
Smelltu hér til að skrá þig
Krafa verður send í heimabanka.
