Samfélagsmiðla Masterclass
Leiðbeinandi: Tanja Ýr Ástþórsdóttir
Dagsetningar: 5. og 6. september 2026
Tími: 12:00–16:30
Staðsetning: Viska, Ægisgötu 2
Verð: 60,900 kr
Komdu og fáðu raunhæfan og hagnýtan skilning á samfélagsmiðlamarkaðssetningu með það að markmiði að byggja upp sterkt vörumerki og auka sölu, bæði með því að ná langt organically, með réttu efni, UGC og áhrifavöldum.
Námskeiðið er hannað fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem vilja læra hvað virkar í raun, hvernig á að búa til efni sem nær athygli og hvernig á að setja saman herferðir sem skila árangri án þess að treysta eingöngu á kostaðar auglýsingar.
Við förum einnig í grunnskilning á auglýsingum, hvernig á að lesa tölur, hvað skiptir máli og ekki síður hvað á alls ekki að gera, til dæmis þegar unnið er með auglýsingastofum eða áhrifavöldum.
Þú lærir:
• Hvernig samfélagsmiðlar virka í dag (Instagram, TikTok o.fl.)
• Hvernig þú byggir upp miðla sem skilar raunverulegum árangri
• Hvernig á að búa til efni sem selur, ekki bara fær læk
• Hvernig UGC virkar og hvernig þú getur nýtt það í markaðssetningu
• Hvernig á að vinna með áhrifavöldum – frá fyrsta samstarfi til langtímasamstarfs og herferða
• Hvaða tegundir áhrifavalda- og UGC-herferða virka best
• Hvernig þú setur upp markaðs- og efnisherferðir frá A–Ö
• Grunnskilning á kostuðum auglýsingum og hvernig á að lesa tölur og árangur
• Hvað tölur skipta raunverulega máli í samfélagsmiðlum (og hvað ekki)
• Hvaða verkfæri og tól eru gagnleg í daglegri vinnu
• Hvernig hægt er að nýta gervigreind í markaðssetningu og efnisgerð
• Algeng mistök í markaðssetningu og hvað ber að varast
Þetta námskeið er fyrir þig ef:
• Þú ert markaðsstjóri, eigandi fyrirtækis eða sérð um samfélagsmiðla fyrirtækja
• Þig langar að byggja upp sterka viðveru á samfélagsmiðlum fyrir fyrirtæki
• Þú vilt læra hvernig efni og herferðir skila sölu
• Þú ert óviss um hvað virkar í efnisgerð
• Þú vilt nýta UGC og áhrifavalda á réttan hátt
• Þig langar að auka sýnileika og tekjur án þess að eyða óþarflega í auglýsingar
• Þú vilt fá betri yfirsýn og sjálfstraust í stafrænni markaðssetningu
