Leiðin heim til þín
Leiðbeinandi: Fjóla Finnbogadóttir
Dagsetning: 3. október 2026
Tími: 10:00–16:00
Staðsetning: Viska, Vestmannaeyjum
Verð: 12.900 kr.
Leiðin heim til þín er vinnustofa fyrir konur sem vilja hægja á sér, hlusta á eigin rödd og finna aftur fyrir tengingu við sjálfar sig.
Í amstri dagsins getur verið auðvelt að gleyma eigin þörfum og setja sjálfa sig í annað sæti. Á þessari vinnustofu gefst þátttakendum tækifæri til að staldra við, draga andann djúpt og gefa sér tíma til sjálfsskoðunar í öruggu og styðjandi umhverfi.
Dagurinn samanstendur af hugleiðslu, sjálfsvinnu, dagbókarvinnu, samtali og tengingu við náttúruna eftir aðstæðum. Áhersla er lögð á að skapa rólegt rými þar sem hver og ein getur mætt eins og hún er, án þess að þurfa að laga eða breyta neinu.
Markmið vinnustofunnar er að hjálpa þátttakendum að finna aftur leiðina heim til sín og velja sér lítil, raunhæf skref sem styðja við aukna vellíðan og jafnvægi í daglegu lífi.
Þú þarft ekki að vera á ákveðnum stað í lífinu til að taka þátt – þú mátt bara koma og vera.
Smelltu hér til að skrá þig
