Verkfærakistan

25.000 kr.

Category:
Description

Verkfærakistan 

Leiðbeinendur: Tinna Tómasdóttir, Arndís María Kjartansdóttir og Tanya Rós Jósefsdóttir 

Dagsetningar: 9., 11., 16. og 18. september 2026
Tími: 10:00–12:00
Staðsetning: Viska, Vestmannaeyjum
Verð: 25.000 kr. 

Verkfærakistan er hagnýtt námskeið fyrir fólk í atvinnuleit eða þau sem eru að huga að breytingum á starfsvettvangi sínum og vilja styrkja færni sína í atvinnuleit. 

Á námskeiðinu verður unnið með markmiðasetningu, styrkleika og sjálfstraust ásamt því að fara yfir helstu verkfæri sem nýtast í atvinnuleit. Þátttakendur fá leiðsögn við gerð ferilskrár og kynningarbréfa, undirbúning fyrir atvinnuviðtöl og hvernig hægt er að standa að virkri atvinnuleit á markvissan hátt. 

Einnig verður fjallað um hvernig nýta má upplýsingatækni og stafræn verkfæri til að styðja við atvinnuleit og auka möguleika á vinnumarkaði. 

Námskeiðið hentar öllum sem vilja efla sjálfstraust sitt, skerpa á markmiðum sínum og undirbúa sig fyrir næstu skref á vinnumarkaði. 

 

 Skráðu þig hér

 

Product Enquiry

Product Enquiry