Uppleið – nám byggt á hugrænni atferlismeðferð er nám sem ætlað er að ná til þeirra einstaklinga innan markhóps framhaldsfræðslu sem síst afla sér menntunar og greiða leið þeirra til áframhaldandi náms og virkni með hvatningu og sjálfstyrkingu að leiðarljósi. Markmiðið er að auka færni námsmanna til að takast á við hamlandi líðan með því að nýta sér aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) í daglegu lífi og breyta þannig hugsun, tilfinningum og hegðun og í kjölfarið viðhalda betri líðan.
Aðeins 8 manns komast á námskeiðið. Þeir sem að eru með stutta formlega skólagöngu hafa forgang.
https://frae.is/storage/2022/01/Namskra-Uppleid-nam-byggt-a-hugraenni-atferlismedferd.pdf
Kennari : Fríða Hrönn Halldórsdóttir, Náms- og starfsráðgjafi menntuð í hugrænni atferlismeðferð.
Námsleiðin er kennd á Ægisgötu 2 í húsnæði Visku og fer fram á mánudögum og fimmtudögum á milli 9 og 13 þá daga.