Námið er 80 klukkustunda nám og fer fram í tveimur lotum. Í fyrri lotu er lögð áhersla á að byrjendur læri mótuð ferli með leiðbeinanda og verkstjórn og í lotu 2 á við nám nýliða í Fab-lab að læra sjálfforræði samkvæmt verklýsingu og eftirliti leiðbeinanda.
Sjá námsskrá: https://frae.is/storage/2022/01/Fab-Lab-mars-2015.pdf
Lota l
- Í lotu 1 læri námsmenn í mótuðu ferli með leiðbeiningum og verkstjórn.
- Í lotu 1 verði áhersla á undirstöðu- þekkingu, leikni og hæfni. ● Lota 1 leggur grunn að verkum sem eru unnin í lotu 2.
- Í lotu 1 er áhersla á grundvallar verkþekkingu á verkstæði. Námsmenn læra á helstu tæki í Fab Lab og ná góðu valdi á hugbúnaði tengdum þeim. Áhersla er lögð á að námsmenn læri á opin/frjálsan hugbúnað (open software, sem hægt er að fá frítt á neti.)
- Í lok fyrstu lotu eiga námsmenn að kunna góð skil tækjum s.s. leiserskera, vínilskera og þrívíddarprentara og hvernig beri að forvinna hönnun stafrænt svo henti hverju tæki. Lota ll
- Í lotu 2 læri námsmenn með því að vinna, samkvæmt verklýsingum, sjálfstætt, með leiðbeiningum og eftirliti.
- Í lotu 2 verði áhersla á að bæta við og festa í minni þekkingu sem fékkst í lotu 1 og auka leikni .
- Í lotu 2 er áhersla á stafræna hönnun, hugmyndavinnu og framkvæmd hugmynda. ● Námsmenn vinna að að eigin hönnun og smíða lokahlut. Námsmenn vinna tímaáætlun og markmiðalista í samráði við leiðbeinanda.
- Ef námsmenn hafa, samkvæmt mati leiðbeinanda, þekkingu, leikni og hæfni/færni sem nægir til að uppfylla viðmið fyrir lotu I og eru líklegir til að geta unnið sjálfstætt og borið ábyrgð á verki er heimilt að verja hluta eða öllum námstímanum til náms samkvæmt lýsingu fyrir lotu II.
Mennta- og menningarmálráðuneytið heimilar að meta fyrir þessa námsleið allt að 10. Einingum.
Námsmat: Verkefnaskil, 80% mætingarskylda og virk þátttaka.
Farið verður af stað með námið þegar að kominn er 10.manna hópur.
Kennsla fer fram 2 daga í viku seinnipart og annan hvern laugardag.
Nánari upplýsingar:
Fríða Hrönn Halldórsdóttir: fridahronn@snjallvefur.is
Sólrún Berþórsdóttir: solrunb@snjallvefur.is