Ragga Nagli – bestar á breytó

7.500 kr.

Category:
Description

RAGGA NAGLI – BESTAR Á BREYTÓ

Ertu á breytingaskeiðinu og vilt vita hvað þú getur gert til að styðja betur við heilsuna, orkuna og líkamann á þessum nýja kafla?

Í samstarfi við Now vítamín og H verlsun fáum við Röggu Nagla til okkar í Visku með frábæra fyrirlesturinn sinn Bestar á breytó þar sem farið verður yfir lífsstílsbreytingar fyrir konur á breytingaskeiði, með áherslu á mataræði, hreyfingu, vöðvauppbyggingu og bætiefni.

Á námskeiðinu verður meðal annars fjallað um:

• Hvernig hreyfing og næring nýtist best á breytingaskeiði

• Fitutap og vöðvauppbyggingu

• Áhrif hormónabreytinga á líkamssamsetningu

• Næringu fyrir og eftir æfingar

• Bætiefni fyrir konur á breytingaskeiði

Að fyrirlestri loknum gefst tækifæri til að spyrja Röggu spurninga og fá ráðgjöf. Þátttakendur fá einnig hugmyndir að áhrifaríkum æfingum og mataræði sem styður við heilsu og frammistöðu.

Allir þátttakendur fá veglega gjöf frá H verslun auk afsláttar af vítmaínum og bætiefnum frá NOW!

Boðið verður upp á léttar veitingar á meðan námskeiði stendur.

Dagsetning: 19. september

Tími: 13:00–15:00

Staðsetning: Viska, Ægisgötu 2

Verð: 7.500  kr.

Komdu og fáðu hagnýta fræðslu og verkfæri til að verða best á breytó.

 

Smelltu hér til að skrá þig

 

Product Enquiry

Product Enquiry