Sushigerð
Leiðbeinendur: Thelma Lind Steinunnardóttir og Einar Björn
Dagsetning: 4. nóvember 2026
Tími: 17:00–20:30
Staðsetning: Einsi Kaldi
Verð: 19.900 kr.
Langar þig að læra að útbúa ferskt og bragðgott sushi undir leiðsögn reyndra leiðbeinenda?
Á þessu skemmtilega og hagnýta námskeiði læra þátttakendur helstu grunnatriði sushigerðar, allt frá undirbúningi hráefna til uppsetningar og framreiðslu. Farið verður yfir aðferðir og handbrögð sem gera öllum kleift að útbúa eigið sushi heima við.
Námskeiðið endar á sameiginlegri máltíð þar sem þátttakendur njóta þess sem þeir hafa útbúið saman í notalegu umhverfi.
Eitt léttvínsglas er innifalið í verði námskeiðsins.
Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja bæta við þekkingu sína á japanskri matargerð og eiga skemmtilega kvöldstund í góðum félagsskap.
Smelltu hér til að skrá þig
