Description
Á þessu námskeiði fá þátttakendur tækifæri til að njóta útivistar og samveru í fallegri náttúru eyjanna. Við komum saman og förum á ný svæði í hverjum tíma þar sem við kynnumst dásamlegri náttúru, lærum örnefni og skoðum ólíka staði.
Sindri Ólafsson, leiðir okkur um náttúruna á aðgengilegan og skemmtilegan hátt. Stundum notum við hop on – hop off strætó, sem gerir okkur kleift að kanna mismunandi svæði og upplifa fjölbreytileika umhverfisins.
Námskeiðið er ætlað fullorðnu fólki með fötlun sem hefur áhuga á að auka félagslega virkni og njóta samveru í öruggu og jákvæðu umhverfi.
Dagsetningar:
14. apríl
21. apríl
28. apríl
5. maí
12. maí
19. maí
Tími: 16:00-17:30
Verð: 14,900 kr
Smelltu hér til að skrá þig
Product Enquiry
