Viltu kynna þér matvælaöryggi?
Ljóst er að öryggi og þekking í meðhöndlun matvæla er mjög mikilvæg. Þetta námskeið er fyrir alla sem vinna eða vilja vinna í matvælavinnslu s.s. eldhúsi, veitingarstöðum eða við framreiðslu matvæla og fleira.
Kennt verður seinni part dags tvisvar í viku, tvo tíma í senn. Námskeiðið stendur yfir í 10 vikur.
Námsþættir:
- Matvælaörverufræði
- Innra eftirlit, HACCP/GÁMES
- Gerð matseðla, vöruþekking og fæðuflokkarnir
- Að auka hollustu máltíða og tilbúinna matvæla
- Geymsluþol, skynmat, vöruþekking
- Ofnæmi og óþol
- Þrif og sótthreinsun
Kennt er eftir námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Allar nánari upplýsingar og skráning veitir Minna í síma 847-6690 eða viska@viskave.is