Fjármál við starfslok
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum skýra yfirsýn yfir fjármál við starfslok og þær breytingar sem fylgja því þegar starfsævinni lýkur. Með aukinni þekkingu verður auðveldara að taka upplýstar ákvarðanir, vita hvaða möguleikar eru í boði og hvert skal leita, og aðlaga sig að breyttu lífsmynstri.
Á námskeiðinu er fjallað, á einföldu og aðgengilegu máli, um greiðslur frá Tryggingastofnun, skerðingar, lífeyrisréttindi, séreignarsparnað, skattaleg áhrif og þann sveigjanleika sem er í boði við töku lífeyris. Einnig er farið yfir atriði sem geta dregið úr líkum á ófyrirséðum skattgreiðslum eða endurkröfum.
Efni námskeiðsins
Greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins og skerðingar
Hvernig skatturinn fléttast inn í lífeyrismálin
Kostir og gallar þess að flýta eða seinka töku lífeyris
Hálfur lífeyrir og aðrir valkostir
Tilgreind séreign – hentar hún fyrir mig?
Ráðstöfun séreignarsparnaðar
Fyrir hverja
Námskeiðið hentar þeim sem eru að huga að starfslokum, nálgast eftirlaunaaldur, hafa nýverið hætt störfum eða vilja auka þekkingu sína á fjármálum við starfslok.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Lilja Lind Pálsdóttir, viðskipta- og hagfræðingur með víðtæka reynslu af fræðslu og ráðgjöf í lífeyrismálum.
5. mars kl. 17:00–20:00
Viska, Ægisgötu 2
Verð: 19.900 kr.
Námskeiðið er endurgreiðanlegt hjá flestum stéttarfélögum.
Smelltu hér til að skrá þig
