Áhugasviðsgreining

Vissir þú að Viska býður upp á áhugasviðspróf.

Áhugasviðskönnun segir til um hvar áhugasvið fólks liggja og geta gefið vísbendingar um hvaða starfssvið myndi henta. Slík könnun getur því auðveldað þér við val á námi og starfi. Hafa ber í huga að þegar niðurstöðurnar koma tekur við nokkur vinna með náms- og starfsráðgjafa Visku við að kanna nám og störf sem koma til greina fyrir þig. Í þessari vinnu þarf að fara í ákveðna sjálfskönnun þar sem þú skoðar m.a. styrkleika þína, reynslu og gildismat.

Viska býður upp á íslensku áhugasviðskönnunina Bendill. Hún er á kostnaðarverði og kostar 3700 kr.

Könnunin er rafræn og tekur um 35 – 45 mínútur að svara henni. Unnið er síðan úr henni hjá náms- og starfsráðgjafa.

Boðið er upp á:

Bendill II

sem miðast helst
við þarfir ungs fólks á aldrinum 16 – 25 ára, bæði á meðan á námi stendur og að
því loknu.

Bendill III

sem tekur mið af
þörfum fullorðinna sem hafa hug á háskólanámi fyrst og fremst.

Bendill IV

sem tekur mið af þörfum fullorðinna á vinnumarkaði.

Frábær síða fyrir þá sem að eru að huga að næstu skrefum