Minna Ágústsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Visku. Minna er kennari að mennt og hefur starfað við kennslu í grunnskóla og leikskóla undanfarin ár ásamt því að vera einkaþjálfari og reka eigið heilsueflandi fyrirtæki. Minna mun hefja störf 1. janúar 2023 og hefur stjórn Visku fulla trú á að menntun, reynsla og viðhorf hennar muni nýtast Visku vel og styrkja til framtíðar.
Minna Ágústsdóttir ráðin forstöðumaður Visku
![](https://viskave.is/wp-content/uploads/2022/11/minna_ads.jpg)
09
Nov