Viska,  fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja  óskar eftir að ráða forstöðumann. Við leitum að öflugum og framsýnum leiðtoga til að stýra daglegri starfsemi.  Viska er til húsa og í virku samstarfi  við Þekkingarsetur Vm.  – ÞSV – Ægisgötu 2  í  fjölbreyttu og skapandi umhverfi.

 

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið

Daglegur rekstur og stjórnun

Gerð rekstrar- og starfsáætlana

Stefnumótun  og nýsköpun

Verkefnastjórn

Samstarf og samráð við hagsmunaaðila

 

Menntunar og hæfniskröfur

Háskólamenntun sem nýtist í starfi

Reynsla af rekstri og fjármálum

Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Góð tungumálakunnátta og tölvufærni

Góð hæfni í mannlegum samskiptum

Reynsla og þekking á verkefnastjórn

Þekking á fullorðins- og framhaldsfræðslu  og/eða öðrum mennta- og skólamálum

Umsóknarfrestur er til 20. október 2022 og skal umsóknum skilað á netfangið viskavestm@gmail.com. Nánari upplýsingar veitir Helga Björk Ólafsdóttir, varaform. stjórnar  í síma 843-0751.

 

Stjórn Visku  fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar Vm.