Raunfærnimat í skipstjórn Raunfærnimat er leið til að meta þá færni og þekkingu sem öðlast má á vinnumarkaði. Matið getur mögulega stytt nám og verið hvatning til að ljúka því. Viska býður upp á raunfærnimat í skipstjórn á landsvísu í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Skipstjórnarskóla Tækniskólans.Skilyrði fyrir þátttöku í raunfærnimati í skipstjórn eru 23 ára aldur, og að lágmarki, þriggja ára staðfest starfsreynsla á sjó.Raunfærnimatsferlið:Þú sækir um og skilar inn gögnumVerkefnastjóri/Náms- og starfsráðgjafi hefur samband við þigÞú metur þekkingu þína með því að svara sjálfsmatslistumÞú ferð í matssamtal hjá fagaðila og niðurstöður eru skráðarÞú færð ráðgjöf varðandi næstu skref Sækja um raunfærnimat í skipstjórn