Tæknilæsi og tölvufærni
Langar þig að verða öruggari í tölvunotkun?
Í náminu styrkir þú grunnfærni þína í upplýsingatækni og kynnist stafrænum verkfærum sem nýtast í vinnu og námi. Markmiðið er að þú treystir betur á eigin getu og eigir auðveldara með að tileinka þér nýja tækni.
Í náminu er fjallað um
– Sjálfvirkni og gervigreind.
– Öryggi í stafrænu umhverfi.
– Verkfæri fyrir fjarvinnu og fjarnám.
– Stýrikerfi og almenna tölvunotkun.
– Skýjalausnir til að vista og deila skjölum.
Námið er kennt samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Námið hentar þeim sem vilja styrkja grunnfærni sína í upplýsingatækni.
Dagsetning: 19. janúar til 30. mars 2027
Tími: Kl. 16:30–18:30 á þriðjudögum og fimmtudögum
Leiðbeinandi: Guðbjörg Guðmannsdóttir
Verð: 21.200 kr.
Staðsetning: Viska, Ægisgötu 2, 2. hæð
Hér má sjá nánari lýsingu á náminu
