Raunfærnimat í skipstjórn
Umsóknarferli
Þú sækir um með þvi að senda póst á netfangið viska@viskave.is
Eftirfarandi þarf að fylgja umsókn:
– lögskráningaryfirlitið þitt í PDF formi sem þú færð hjá Samgöngustofu
– Yfirlit yfir námsferilinn þinn á framhaldsskólastigi, ef þú hefur slíkan feril.
Raunfærnimat er þeim að kostnaðarlausu sem ekki hafa lokið námi úr framhaldsskóla, en aðrir greiða fyrir það.
Kostnaður í raunfærnimati
- Þeir sem hafa ekki lokið námi úr framhaldsskóla greiða ekki fyrir raunfærnimat.
- Þeir sem hafa lokið sveinsprófi, stúdentsprófi eða sambærilegri menntun greiða fyrir raunfærnimatið.
Mat á 1 – 3 áföngum:
35.000 kr fyrir hvern áfanga í matsviðtali
Mat á 4 áföngum eða fleiri:
Greitt er samkvæmt verðskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins:
- Grunngjald kr. 198.900,- og kr. 2.440,- fyrir hverja metna einingu í áfanga.
Þeir sem greiða í stéttarfélög geta sótt um fræðslustyrk til viðkomandi félags. Mismunandi er eftir félagi hversu mikið er endurgreitt.