Grunnnámskeið fyrir fiskvinnslufólk
Námsskráin lýsir námi fyrir fiskvinnslufólk á 1. þrepi hæfniramma um íslenskt menntakerfi, skipt í 13 námsþætti. Námið er ætlað þeim sem starfa við verkun og vinnslu sjávarafla, það er í flakavinnslu, frystingu, söltun, skreiðarverkun, rækju- og skelvinnslu. Markmið námsins er að auka þekkingu námsmanna á vinnslu sjávarafla og meðferð aflans allt frá veiðum og að borði neytandans ásamt því að styrkja faglega hæfni námsmanna. Námið er sniðið að þeim sem eru 18 ára eða eldri og hafa stutta formlega skólagöngu að baki. Fyrirkomulagi námsins er lýst í 18. kafla kjarasamnings SA og Starfsgreinasambandsins/Flóans frá 29. maí 2015. Námið er 128 klukkustunda langt og mögulegt að meta það til 7 eininga á framhaldsskólastigi.
Viska- fræðslu og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja hefur verið i samstarfi við Fisktækniskólann með námskeið fyrir mjölmenn á landsvísu.
Námskeiðin eru kennd í gegnum Learncove kerfi og fara þar af leiðandi öll fram í fjarkennslu.
Námsskrá Grunnnámskeið fyrir fiskvinnslufólk
Skráning í síma 847-6690 eða í gegnum netfangið viska@viskave.is
Verð: 23.000 kr