VISKA VISKA
  • Heim
  • Fréttir og tilkynningar
  • Námskeið vor 2023
  • Námsleiðir vor 2023
  • Námsráðgjöf
    • Námsörðuleikar
    • Náms- og starfsráðgjöf fyrir einstaklinga, hópa og fyrirtæki
    • Áhugasviðsgreinig
    • Lesblindugreining
  • Raunfærnimat
    • Raunfærnimat í iðngreinum
    • Raunfærnimat í skipstjórn
  • Þjónusta
    • Fjarnámsþjónusta
    • Aðstoð og aðstaða fyrir nemendur
  • Um Visku
    • Skipurit Visku
    • Ársskýrslur og ársreikningar
    • Persónuverndarstefna Visku
    • Réttindi og skyldur – verkferlar
    • Hafa samband
0 items / 0 kr.
VISKA VISKA
Menu
0 items / 0 kr.

Mey – Kraftur kvenna á Heimaey

13.900 kr.

Þann 22. apríl næstkomandi verður haldin mögnuð kvennaráðstefna í Vestmannaeyjum sem ber yfirskriftina Mey – kraftur kvenna á Heimaey.

Markmiðið er að sameina konur, styrkja, gleðja og valdefla. Ráðstefnan er tilvalin fyrir vinnustaði – vinkonur– mæðgur – systur – frænkur eða bara allar konur sem vilja gera sér glaðan dag og næra sig á líkama og sál.

Dagskrá:

13:00-14:00

Dr. Guðfinna Bjarnadóttir

Hugrekki – að þora að þora

Guðfinna var fyrsti rektor Háskólans í Reykjavík, hún lauk doktorsprófi í atferlisfærði með áherslu á stjórnun og hefur starfað víða um heim sem ráðgjafi í stjórnun og stefnumótun. Hún er einn af stofnendum Magnavita ehf. sem snýst um að fjölga spennandi og heilbrigðum æviárum. Guðfinna mun fjalla um leiðir til að auðga lífið, nýta kraftinn í auði kvenna og efla okkur sjálfar.

14:-14:30

Hrönn Róbertsdóttir

Konur og svefn

Hrönn á og rekur tannklæknastofuna Brosið. Hún er tannlæknir og Diplomate of the American Board of Dental Sleep Medicine. Í erindi sínu mun Hrönn ræða um : Svefnháðar öndunartruflanir, hvernig hormónabreytingar geta haft áhrif á svefn, tengsl svefns og munnþurrks; mikilvægi þess fyrir alla almenna heilsu að hafa heilbrigt munnhol og hvernig við getum hjálpað okkur sjálf að bæta þessa þætti.

14:30-15:00

Kaffi og léttar veitingar

15:00-16:00

Jónína Björk Hjörleifsdóttir

Skapandi vinnustofa

Jónína er listakona og meðlimur í Lista og menningarfélagi Vestmannaeyja. Hún mun leiðbeina konum í leirgerð þar sem allar konur hanna sinn eigin kertastjaka sem þær fá svo að eiga. Hugsunin er að stjakinn minni konur á daginn og fræðsluna og haldi áfram að styrkja og lýsa þeim veginn.

16:00-17:00

Sigríður Soffía Níelsdóttir

 

              Allt öðruvísi smakkupplifun leidd af Siggu Soffíu, dansaranum Emilie og DJ Club kid

 

 

Danspörun, líkt og matarpörun með víni nema hreyfipörun. Sýnikennsla á danssporum með kampavínsglasi.Ilmkynning – Chrysanthemum ilmur Eldblóma.Þá verður sagt frá upphafi og þróun Eldblóma Elexírsins – hinum eina sanna íslenska spritz sem fær þig til að dansa!

Sigríður Soffía Níelsdóttir er listakona og danshöfundur. Sigga Soffía hefurundanfarin ár helgað sig flugeldum á himni og á jörðu. Eftir margra ára feril sem listrænn stjórnandi flugeldasýninga á menningarnótt á Íslandi og í Barcelona, hefur hún nú beint athyglinni að blómstrandi flugeldum. Sigga Soffía hefur einnig þróað alíslenskan Spritz úr eldblómum. Erindin hennar hafið vakið athygli og skilja eftir sig skemmtilega upplifun. Sigga Soffía hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin árið 2022.

 

17:00-20:00

Rölt um miðbæ Vestmannaeyja að skoða verslanir og vínveitingastaði. Frúin góða vínbar og Brothers brewery verða með spennandi drykki á boðstólnum ásamt því að verslanir verða með lengri opnunartíma.

 

20:00

Veitingastaðurinn Gott

Sérvalin geggjaður tveggja rétta matseðill að hætti Gott og lifandi tónlistaratriði.

Kvöldverður er ekki innifalin í verði.

 

Staðsetning : Sagnheimar

Verð : 13.900

Skráning : minna@viskave.is eða í síma 847-6690

 

 

 

 

 

 

Vöruflokkur: Námskeið 2023
Share:
  • Senda fyrirspurn
Senda fyrirspurn

Senda fyrirspurn

Fleiri möguleikar

Setja í körfu

Tölvu- og miðlalæsi fyrir 60 ára og eldri

Námskeið 2023
0 kr.
Setja í körfu

Canva námskeið

Námskeið 2023
9.900 kr.
Setja í körfu

Námskeið um kynheilbrigði fyrir fullorðið fólk með þroskahömlun og/eða aðrar fatlanir

Námskeið 2023
0 kr.
Setja í körfu

Tálgunarnámskeið

Námskeið 2023
25.900 kr.
Setja í körfu

Karl Jóhann- myndlist

Námskeið 2023
32.590 kr.
Setja í körfu

Íslenska 1- Icelandic 1

Námskeið 2023
45.000 kr.
Setja í körfu

Íslenska 2 – Icelandic 2

Námskeið 2023
45.000 kr.
viska-logo_tp_200

Vönduð fræðsla, símenntun, námskeið og þjónusta fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.

  • FLÝTILEIÐIR
    • Námsleiðir
    • Námskeið
    • Námsráðgjöf
    • Raunfærnismat
  • UM VISKU
    • Um VISKU
    • Árskýrslur og ársreikningar
    • Hafa samband
  • ÞJÓNUSTA
    • Fjarnámsþjónusta
    • Réttindi og skyldur – verkferlar

Höfundaréttur 2023 VISKA – Ægisgata 2 | 900 Vestmannaeyjar | viska@viskave.is

  • Námskeið
  • Fréttir og tilkynningar
  • Um Visku
  • Hafa samband
Karfa
loka
Facebook Instagram
Start typing to see posts you are looking for.