32.000 kr.
Um námskeiðina
Námskeiðið er grunnur í íslensku fyrir nemendur sem þurfa að fara hægt yfir námsefnið. Lestur, ritun (einnig á lyklaborð) og tal eru þjálfuð með kennara.
Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar og námsefni af vefmiðlum verður nýtt.
Námsmat: Verkefnaskil, 80% mætingarskylda og virk þátttaka.
Uppbygging náms/Námsskrá: https://frae.is/storage/2021/12/Utlit_-Ad-lesa-og-skrifa-a-islensku-drog-1.pdf
Kennt er mánudaga frá kl: 17:00-20:00
Á námskeiðinu læra nemendur íslenska stafrófið og þjálfa framburð, læra grunnorðaforða daglegs máls og einfalda setningagerð. Þeir læra að segja frá sjálfum sér og spyrja og svara einföldum spurningum. Innsýn í íslenskt samfélag er fléttuð inn í námið. Nemendur æfa tal, skilning, lestur og ritun einfaldra setninga með áherslu á talþjálfun með fjölbreyttum kennsluaðferðum.
Þjálfun í að nota tölvur er hluti af námskeiðinu. Með því er er átt við að nemendur noti tölvur til að skrifa einföld orð og upplýsingar um sjálf sig, og æfi sig í að opna gagnlegar vefsíður og nota „öpp“ sem komi að gagni í náminu eða daglegu lífi.
Mjög einföld málfræði er kynnt í tengslum við námsefnið. Námskrá menntamálaráðuneytis um nám í íslensku fyrir útlendinga er höfð til hliðsjónar við val námsþátta. Í lok námskeiðs er staða nemenda metin og þeim ráðlagt um áframhaldandi íslenskunám.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Lilja
johanna.lilja1@gmail.com eða í síma 867-1160