08.03.2010 16:01
Orkubóndinn
Orkubóndinn er námskeið fyrir áhugafólk um virkjun orku, einstaklinga, fyrirtæki, landeigendur og alla sem hafa áhuga á að beisla orkuna heima fyrir. Á Orkubónda námskeiðunum hefur verið fjallað á aðgengilegan hátt um leiðir til að virkja læki eða ár, jarðhita, vindorku, sólarorku eða jafnvel fjóshauginn.
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru sérfræðingar frá Nýsköpunarmiðstöð, Orkustofnun, verkfræðistofum víða af landinu og heimamenn. Í kjölfar námskeiðsins fá þeir þátttakendur sem þess óska aðstoð við að hrinda virkjunarhugmyndum í framkvæmd.
Orkubóndinner samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Mannvits, Orkustofnunar, ÍSOR, Iðnaðarráðuneytisins, Verkís, atvinnuþróunarfélaga og sveitarfélaga víða um land.
Við höfum áhuga á að fá nemendur og kennara og alla þá sem hafa áhuga á virkjun orku hér í Eyjum.
Á námskeiðinu hér verður mest rætt um mögulega virkjun orku í Eyjum, Vindorkumál, varmadælur, ölduvirkjun o.fl. o.fl
Nánari útfærsla dagskrár mun liggja fyrir á allra næstu dögum.
