01.03.2010 16:30
Framhaldsnámskeið í ljósmyndun
Á þessu námskeiði er lögð áhersla á notkun myndavélarinnar við mismunandi aðstæður, úti og inni, og hvernig fólk getur náð því besta út úr vélinni hverju sinni.
Farið verður yfir áhugasvið þátttakenda, lögð fyrir verkefni og æfingar og leiðbeint við myndatöku við þessi verkefni. Helstu reglur við ljósmyndun eru skoðaðar og hvernig hægt er að brjóta þær með það í huga að ná fram meira spennandi og áhugaverðari myndum. Á námskeiðinu verður farið í útimyndatöku síðdegis og kvöld og afrakstur þeirrar vinnu skoðaður og gagnrýndur daginn eftir.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur kunni skil á helstu stillingum myndavélarinnar.
Leiðbeinandi: Páll Jökull Pétursson, en hann hefur starfað við útgáfu tímarita og bóka um árabil. Auk þess að vera virkur áhugaljósmyndari hefur hann tekið flestar myndir fyrir tímarit sitt, Sumarhúsið og garðurinn síðastliðin 15 ár.
www.palljokull.com
www.flickr.com/photos/palljokull
www.pbase.com/pall