06.09.2010 10:21

STARFSMANNASAMTÖL, LAUNAVIÐTÖL OG SAMNINGATÆKNI

 

Hér er lögð áhersla á að kynna fyrir stjórnendum þætti  sem geta styrkt undirstöður þeirra og sjálfstraust til að takast á við

það mikilvæga ferli að þekkja og undirbúa sig af kostgæfni fyrir starfsmannasamtöl og launaviðtöl. Tilgangur og ávinningur

af starfsmannasamtölum verður ræddur út frá ýmsum sjónarhornum s.s. stjórnanda, starfsmanns og yfirstjórnar.

Lesa meira...


06.09.2010 10:17

Fjölbreytt námskeið á næstunni frá EHÍ

Lesa meira...


24.08.2010 11:49

Skrifstofuskólinn

Kennt í húsnæði Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum.

kennt  tvö kvöld í viku og annan hvern laugardag

 

Þessi námsleið er ætluð þeim sem vinna almenn skrifstofustörf eða þeim sem hafa hug á að skipta um starfsvettvang. Tilgangur námsins er að auka sjálfstraust námsmanna til að takast á við almenn skrifstofustörf og stuðla að jákvæðu viðhorfi til þeirra til áframhaldandi náms. í náminu er lögð áhersla á að þátttakendur læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Námsaðferðir eru aðallega byggðar á hagnýtum viðfangsefnum sem er auðvelt að yfirfæra á almenn skrifstofustörf.  

Í Skrifstofuskólanum er megináhersla á tölvu- og upplýsingatækni, bókhald, verslunarreikning og ensku auk þjónustu og samskiptaáfanga. Námið er 240 kennslustundir og verður kennt á tveimur önnum.

 

Nánari upplýsingar um námskrána er að finna hér:   http://frae.is/files/Skrifstofuskólinn_797693206.pdf

 

Námið hefst seinni part september eða byrjun október og verður kennt á mánudögum og miðvikudögum og annan hvern laugardag.
Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að framhaldsskólar geti metið námið til eininga.

 

Verð: 43.000 kr.

Lesa meira...


24.08.2010 11:48

Grunnmenntaskólinn

Húsnæði Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum.

kennt  tvö kvöld í viku og annan hvern laugardag

 

Þetta nám er ætlað þeim sem eru að minnsta kosti 20 ára og hafa litla eða enga menntun eftr grunnskóla. Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustunda nám, en tilgangur námsins er að stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til áframhaldandi náms og auðvelda þeim að takast á við ný verkefni í vinnu. Í náminu er lögð áhersla á að námsmenn læri að læra og efli sjálfstraust sitt í námi. Grunnmennataskólinn styrkir nemendur í grunngreinum, íslensku, ensku og stærðfræði og einnig er tekið á þáttum eins og upplýsingatækni, sjálfstyrkingu og námstækni.

 

Nánari upplýsingar um námskrána er að finna hér: http://frae.is/files/GrunnmenntaskoliBlatt_1185853824.pdf

Lesa meira...


24.08.2010 11:48

Færni í ferðaþjónustu

Kennt í húsnæði Visku að Strandvegi 50

 

Námið hentar þeim sem hafa áhuga á að starfa í ferðaþjónustu s.s. á hótelum, gistiheimilum, veitingastöðum, verslunum, söfnum, bílaleigum  og við ýmiskonar afþreyingu. Í náminu verður m.a. farið í þjónustu, staðarþekkingu, tungumál, tölvur, umhverfi og ferðaþjónustu og sjálfseflingu. Námið er 60 stundir að lengd og kennt verður í 20 stunda lotum.
Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að framhaldsskólar geti metið námið til eininga.


Nánari upplýsingar um námskrána er að finna hér: http://www.frae.is/files/Ferðaþjónusta I_935148978.pdf

Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að framhaldsskólar geti metið námið til eininga.

Verð: 11.000 kr

Lesa meira...


Eldri fréttir